Greiðslufyrirkomulag
Tekið er á móti greiðslum með greiðslukortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Heilsubúðin geymir hvorki né tekur á móti kortanúmerum; allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum greiðsluþjónustuaðila. Einnig er hægt að greiða með Netgíró.
Afgreiðsla á vörum
Þegar viðskiptavinur hefur gengið frá pöntun á heilsubudin.is fær hann staðfestingu á pöntuninni í tölvupósti. Pantanir eru að jafnaði sendar út innan 1–3 virkra daga. Pöntunum er dreift af Dropp og gilda afhendingar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Mín Áskrift ehf ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Focused ehf til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Vöruskil
Almennur skilafrestur á vörum er 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings eða pöntunarnúmers. Skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef vara er gölluð greiðir Heilsubúðin sendingarkostnað sem fellur til við skil á vörunni, en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.
Persónuupplýsingar
Heilsubúðin selur hvorki né afhendir persónuupplýsingar eða netföng til þriðja aðila, nema að því marki sem nauðsynlegt er til að afgreiða pöntun, til dæmis til greiðslu- og flutningsaðila. Netföng sem skráð eru á póstlista Heilsubúðarinnar eru eingöngu notuð til að senda upplýsingar um tilboð, vörur og/eða viðburði. Vefurinn notar vafrakökur og mælitól (Google Analytics og Meta) til að greina umferð og bæta þjónustu.
Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.
Almennt um netverslunina
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Heilsubúðin (heilsubudin.is) er rekin af Focused ehf., kt. 650717-1390, og hægt er að hafa samband í gegnum heilsubudin@heilsubudin.is.
