
Ef miðast er við ráðlagðan dagskammt (3 töflur á dag) að þá er þetta 2ja mánaða skammtur
Elexir Maca L-arginine er fæðubótarefni sem inniheldur macarótarþykkni sem stuðlar að kynhvöt karla og kvenna og viðhaldi náttúrulegri kynlífsvirkni og orku. Áhrifin ná bæði til andlegrar og líkamlegrar virkni og þols. Rannsóknir hafa sýnt fram á áhrif maca sem kynhvatarörvandi fyrir bæði karla og konur. Varan inniheldur einnig amínósýruna L-arginín, magnesíum, B6-vítamín, fólínsýru og sink.
Náttúruleg örvun fyrir ánægjuna
Macarótin er rótargrænmeti sem vex í yfir 4000 metra hæð í Andesfjöllunum. Maca er stundum kölluð perúskt ginseng, brasilískt ginseng eða amasonísk ginseng, þó hún sé ekki skyld ginseng. Nafnið er tengt ginseng vegna orkugefandi og kynhvatarörvandi áhrifa. Klínískar rannsóknir á mönnum hafa nú sýnt fram á marktækar jákvæðar eiginleikar sem varða kynhvöt og viðhald náttúrulegrar kynlífsvirkni og orku.
Stuðlar að bæði kynhvöt og virkni
Rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að macarótarþykkni hefur önnur jákvæð áhrif. Þau hafa m.a. andoxunareiginleika sem hjálpa til við að vernda frumur líkamans gegn oxunarálagi, en það áhugaverðasta er að þau stuðla marktækt að eðlilegri kynhvöt bæði hjá konum og körlum.
L-Arginín
Arginín er ein af níu svokölluðum lífsnauðsynlegum amínósýrum, sem þýðir að líkaminn getur ekki framleitt það sjálfur og því þurfum við að fá það úr fæðu. Bókstafurinn „L“ fyrir framan táknar að amínósýran sé í frjálsu formi, sem líkaminn nýtir sér best. Arginín er miðlægt í framleiðslu köfnunarefnisoxíðs (NO) í líkamanum, sem er mikilvægt fyrir blóðflæði og æðavíkkun.
Vítamín og steinefni
Þessi vara er einnig bætt með vítamínum og steinefnum, þ.m.t. B-vítamínum, magnesíum og sinki. Magnesíum stuðlar meðal annars að minni þreytu og úrvinda, á meðan sink stuðlar að eðlilegu testósterónmagni, sem er mikilvægt fyrir bæði karla og konur. B-vítamín hafa mörg hlutverk í líkamanum, þar á meðal stórt hlutverk í orkubúskapnum.